
Um okkur
Hver erum við
Nexen var stofnað í janúar 2024 af Óskari Halldórssyni, sem hefur yfir áratugar reynslu sem tæknimaður með sérhæfingu á brunaviðvörunarkerfum, bæði hér á Íslandi og í Noregi.
Við búum yfir mikilli reynslu og sérfræðiþekkingu á sviði uppsetningar og viðhalds ýmissa öryggiskerfa, þar með talið neyðarljósakerfum, aðgangskerfum, innbrotakerfum, brunaviðvörunarkerfum og myndavélakerfum.
Markmiðið okkar hjá Nexen er að veita viðskiptavinum okkar persónulega þjónustu á faglegan hátt, með áherslu á traust og öryggi í öllum verkefnum.
Okkar þjónustur
Árlegar skoðanir
Löggiltir þjónustuaðilar brunaviðvörunarkerfa með vottun á helstu kerfum. Við bjóðum upp á lögbundnar árlegar skoðanir.
Uppsetningar
Við sérhæfum okkur í uppsetningu helstu brunaviðkerfa í samstarfi við löggilta rafvirkjameistara.
Almennt viðhald
Með víðtæka reynslu af helstu brunaviðvörunarkerfum sinnum við forritun, bilunargreiningu og almennu viðhaldi til að tryggja örugga virkni kerfisins.
Yfirlitsmyndir
Hönnum yfirlitsmyndir sem sýna staðsetningu alls búnaðar í brunaviðvörunarkerfinu.