
TMS3 kallkerfisstjórnstöð
Lexicomm kallkerfisstjórnstöð (ViLX-TMS3-W-8) er stjórnstöð Lexicomm neyðarsamskiptakerfisins og sér um samskipti við útstöðvar fyrir örugg biðsvæði fyrir hreyfihamlaða, slökkviliðssíma og AssistCall aðstoðarbúnað.
Þessi útgáfa er með 8 innbyggðum rásum og hentar stærri kerfum. Hægt er að stækka kerfið eftir þörfum í allt að 512 rásir með Lexicomm stækkunareiningu (ViLX-EX8) eða með fleiri TMS3 kallkerfisstjórnstöðvum. Einnig er í boði TMS3 stjórnstöð án innbyggðra rása sem hentar þegar þörf er á annarri stjórnstöð á öðrum stað í byggingunni án þess að bæta við fleiri rásum.
4,3" litasnertiskjár veitir skýra yfirsýn yfir stöðu kerfisins, innhringingar og bilanir. Hægt er að skilgreina heiti hverrar rásar sem birtist á skjánum þegar boð berast og auðveldar þannig að greina hvaðan boðið kemur. Stjórnstöðin sér jafnframt um spennufæðingu og stöðuga vöktun allra rása sem stuðlar að öruggum og áreiðanlegum rekstri.
Nexen býður stjórnstöðina í íslenskri útgáfu með íslensku viðmóti og valmyndum.
Með stjórnstöðinni fylgir ítarleg íslensk handbók með leiðbeiningum um uppsetningu, gangsetningu, notkun og viðhald kerfisins. Handbókin er jafnframt aðgengileg sem viðhengi hér á síðunni.
Stjórnstöðin uppfyllir kröfur BS 5839-9:2021 staðalsins um neyðarsamskipti í öruggum svæðum og er samhæfð öllum Lexicomm útstöðvum og AssistCall aðstoðarkerfinu.
Skjöl
Uppsetningarleiðbeiningar
Tækniblað
Íslensk notendahandbók





