top of page
object.png

Til baka

Fyrri vara

Útstöð fyrir örugg svæði

Lexicomm útstöð fyrir örugg svæði (ViLX-OSB-G) er hönnuð fyrir örugg svæði fyrir hreyfihamlaða þar sem tryggja þarf áreiðanleg tvíátta talsamskipti við viðbragðsaðila í neyðartilvikum.


Útstöðin er búin neyðarhnappi með blindraletri og ljósvísun sem sýnir þegar óskað hefur verið eftir aðstoð og þegar samband hefur verið komið á.


Nexen býður útstöðina í íslenskri útgáfu þar sem framhliðin er merkt „Öruggt biðsvæði“ og hnappurinn „Neyð“, bæði með íslenskum texta og samsvarandi blindraletri.


Útstöðin er spennufædd frá Lexicomm neyðarsamskiptakerfinu sem sér um stöðuga vöktun á samskiptarásinni.


Útstöðin uppfyllir kröfur BS 5839-9:2021 staðalsins og er ætluð til uppsetningar í öruggum svæðum fyrir hreyfihamlaða samkvæmt gr. 9.5.10 byggingareglugerðar.


Boðið er upp á sérhannað skilti á íslensku og ensku sem útskýrir notkun útstöðvarinnar, merkingu stöðuljósanna og hvernig óska má eftir aðstoð.

Skjöl

Tækniblað

Næsta vara

bottom of page