
IP66 útstöð fyrir örugg svæði
Lexicomm IP66 útstöð fyrir örugg svæði (ViLX-IPB2) er hönnuð fyrir örugg svæði fyrir hreyfihamlaða þar sem tryggja þarf áreiðanleg tvíátta talsamskipti við viðbragðsaðila í neyðartilvikum. IP66 varið hús ver útstöðina gegn ryki og raka.
Útstöðin er með neyðarhnappi og ljósvísun sem sýnir þegar óskað hefur verið eftir aðstoð og þegar samband hefur verið komið á. Hún veitir skýr tvíátta talsamskipti við viðbragðsaðila.
Útstöðin er spennufædd frá Lexicomm neyðarsamskiptakerfinu sem sér um stöðuga vöktun á samskiptarásinni.
Útstöðin uppfyllir kröfur BS 5839-9:2021 staðalsins og er ætluð til uppsetningar í öruggum svæðum fyrir hreyfihamlaða samkvæmt gr. 9.5.10 byggingareglugerðar.
Athugið: Ef staðsetja á útstöð þar sem búast má við frosti mælum við með að skoða ViLX-IPA2.
Skjöl
Uppsetningarleiðbeiningar
Tækniblað




