top of page
object.png

Til baka

Fyrri vara

IP66 slökkviliðssími

Lexicomm IP66 slökkviliðssími (ViLX-IPA2) er útstöð fyrir Lexicomm neyðarsamskiptakerfið og er ætluð slökkviliði og öðru viðbragðsfólki þar sem tryggja þarf öruggt og áreiðanlegt talsamband í neyðartilvikum, meðal annars þar sem ekki er hægt að treysta á talstöðvarsamband.


Síminn er í IP66 vörðu húsi sem veitir góða vörn gegn ryki, raka og veðri og hentar vel til uppsetningar utandyra. Húsið er opnað með snúningslæsingu og einnig er í boði útgáfa með lyklalæsingu.


Símtólið veitir skýrt talsamband og er spennufætt frá Lexicomm neyðarsamskiptakerfinu sem sér um stöðuga vöktun á samskiptarásinni.


Slökkviliðssíminn uppfyllir kröfur BS 5839-9:2021 staðalsins og er samhæfður öllum Lexicomm stjórnstöðvum.


Fyrir örugg biðsvæði fyrir hreyfihamlaða er einnig í boði græn útgáfa sem hentar þar sem þörf er á IP66-vörn og búast má við frosti.

Skjöl

Uppsetningarleiðbeiningar

Tækniblað

Næsta vara

bottom of page