
Kallkerfisstjórnstöð (2–8 rásir)
Lexicomm kallkerfisstjórnstöð fyrir 2–8 rásir (ViLX-228S) er stjórnstöð Lexicomm neyðarsamskiptakerfisins og sér um samskipti við útstöðvar fyrir örugg svæði fyrir hreyfihamlaða, slökkviliðssíma og AssistCall aðstoðarbúnað.
Stjórnstöðin er fáanleg í 2, 4 og 8 rása útgáfum og hentar jafnt fyrir minni sem stærri byggingar. Einnig er hægt að tengja við hana AssistCall aðstoðarbúnað, svo sem togrofa á salernum og neyðarhnappa.
Stjórnstöðin krefst engrar forritunar, sem einfaldar uppsetningu og flýtir fyrir gangsetningu. Hún sér jafnframt um spennufæðingu og stöðuga bilanavöktun á öllum rásum.
Nexen býður stjórnstöðina í íslenskri útgáfu með íslenskum merkingum og leiðbeiningum á framhliðinni.
Með stjórnstöðinni fylgir ítarleg íslensk handbók með leiðbeiningum um uppsetningu, gangsetningu, notkun og viðhald kerfisins. Handbókin er jafnframt aðgengileg sem viðhengi hér á síðunni.
Í viðhengi er einnig útfyllanlegt PDF-skjal sem gerir kleift að skrá staðsetningu hverrar útstöðvar í tölvu og prenta það út til að setja í framhlið stjórnstöðvarinnar.
Stjórnstöðin uppfyllir kröfur BS 5839-9:2021 staðalsins um neyðarsamskipti í öruggum svæðum og er samhæfð öllum Lexicomm útstöðvum og AssistCall aðstoðarkerfinu.
Skjöl
Rásamerkingar
Tækniblað
Íslensk notendahandbók




