top of page

Slökkviliðssími
Lexicomm slökkviliðssími (ViLX-OSA-R) er útstöð fyrir Lexicomm neyðarsamskiptakerfið og er ætluð slökkviliði og öðru viðbragðsfólki þar sem tryggja þarf öruggt og áreiðanlegt talsamband í neyðartilvikum, meðal annars þar sem ekki er hægt að treysta á talstöðvarsamband.
Síminn er í rauðu stálhúsi með segullæsingu. Hægt er að setja hann utan á vegg eða fella hann inn í vegg með innfellingarramma.
Símtólið veitir skýrt talsamband og er spennufætt frá Lexicomm neyðarsamskiptakerfinu sem sér um stöðuga vöktun á samskiptarásinni.
Slökkviliðssíminn uppfyllir kröfur BS 5839-9:2021 staðalsins og er samhæfður öllum Lexicomm stjórnstöðvum.
Skjöl
Uppsetningarleiðbeiningar
Tækniblað
Sniðmát fyrir innfellingarramma
bottom of page




