top of page
object.png

Til baka

Fyrri vara

TMS3 stækkunareining

Lexicomm stækkunareining (ViLX-EX8) er hluti af Lexicomm neyðarsamskiptakerfinu og er hagkvæm lausn þegar fjölga þarf rásum án þess að bæta við annarri kallkerfisstjórnstöð. Hún vinnur með Lexicomm TMS3 kallkerfisstjórnstöð og gerir kleift að stækka kerfið eftir þörfum í allt að 512 rásir.


Stækkunareiningin bætir við átta fullvöktuðum rásum sem hægt er að nota fyrir slökkviliðssíma, útstöðvar fyrir örugg biðsvæði fyrir hreyfihamlaða og AssistCall aðstoðarbúnað. Allar rásir eru spennufæddar frá kerfinu og eru stöðugt vaktaðar.


Hægt er að tengja margar stækkunareiningar saman við TMS3 kallkerfisstjórnstöð og byggja þannig upp eitt samhæft neyðarsamskiptakerfi með allt að 512 rásum.


Stækkunareiningin uppfyllir kröfur BS 5839-9:2021 og er samhæfð Lexicomm TMS3 kallkerfisstjórnstöð, öllum Lexicomm útstöðvum og AssistCall aðstoðarkerfinu.

Skjöl

Uppsetningarleiðbeiningar

Tækniblað

Næsta vara

bottom of page